Header image header image 2  
leiðbeiningar
 


Vinnuferli

  1. Ákveða um hvað verkefnið á að fjalla.
  2. Skrá niður það sem vitað er um efnið í stuttu máli.
  3. Útbúa rannsóknarspurningar sem hjálpa við að takmarka efnið.
  4. Setja saman efnisgrind. Ákveða kaflaskipti, raða niður rannsóknarspurningum o.fl.
  5. Útbúa lista yfir leitarorð sem nota á.
  6. Finna heimildir skv. fyrirmælum hverju sinni, t.d. úr bókum, tímaritum, stafrænum gagnasöfnum (t.d. alfræðirit á Netinu), á stafrænum leitarvélum eins og Google.
  7. Leita í heimildum með því að skoða efnisyfirlit og atriðisorðaskrár. Flokka heimildir og ákveða hvað er nothæft.
  8. Lesa heimildir. Best er að byrja á að lesa stystu heimildirnar. Leita svara við rannsóknarspurningum og skrifa hjá sér aðalatriðin.
  9. Raða efnisþáttum í rétta röð og skrifa uppkast. Eftirfarandi atriði skal hafa í huga þegar kemur að sjálfum skrifunum:
    • Að skrifa fyrir þann sem ekkert veit um efnið.
    • Nota aldrei orð eða orðatiltæki sem þú skilur ekki.
    • Skrifa stuttar og hnitmiðaðar setningar en ekki langar málsgreinar.
    • Muna eftir greinarskilum.
    • Fyrsta efnisgrein í upphafi kafla á ekki að vera inndregin en aðrar efnisgreinar sama kafla eiga að vera inndregnar.
    • Forðast endurtekningar.
    • Ef unnin er glærusýning skal gæta þess að hafa fá og skýr atriði á hverri glæru.
    • Lesa vel yfir áður en efni er skilað eða það flutt. Ágætt er að lesa upphátt fyrir foreldra eða vini. Oft finnast stafsetningar- eða málfarsvillur sem hlaupið hefur verið yfir í fyrsta yfirlestri.  
  10. Lokafrágangur, tölvuvinnsla og skil.
Garðaskóli - Garðabæ
   
Garðaskóli GarðabG