Header image header image 2  
leiðbeiningar
 


Rannsóknarspurningar

Í upphafi vinnuferils er gott að setja sér eitt yfirmarkmið. Dæmi um yfirmarkmið ritgerðar þar sem fjallað er um frelsistríðið í Norður-Ameríku gæti verið að finna hvaða áhrif og afleiðingar frelsisstríðið hafði. Síðan þarf að setja saman nokkrar rannsóknarspurningar og flokka þær eftir efni. Rannsóknarspurningar auðvelda takmörkun efnis ritgerðar og stundum eru þær hafðar til hliðsjónar við gerð kaflafyrirsagna.

Kaflafyrirsagnir eiga að endurspegla efni kaflans. Ákveða þarf fjölda kafla í ritgerð og skipta henni upp í aðalkafla og undirkafla. Í stuttri ritgerð er ekki er nauðsynlegt að hafa undirkafla.


Dæmi um rannsóknarspurningar og flokkun þeirra
Eftirfarandi spurningar voru settar saman af nemendum í Garðaskóla sem síðan unnu út frá þeim. Ritgerðarefnið var Frelsisstríðið í Norður-Ameríku.

  1. Hvenær hófst stríðið og hve lengi stóð það yfir?
  2. Hverjir og hversu margir tóku þátt í frelsisstríðinu?
  3. Af hverju var stríðið háð?
  4. Hvernig var landið fyrir og/eða eftir? 
  5. Hvað dóu margir/mannfall?
  6. Hvernig var barist/vopn/baráttuaðferðir?
  7. Afleiðingar?
  8. Hvernig lauk stríðinu?
  9. Hvernig var stjórnfyrirkomulagið fyrir stríð/eftir stríð?
  10. Hver var æðsti maður í fylkjum N-Ameríku á þessum tíma?

Spurningum sem svarað var í fyrsta kafla. 
Spurningum sem svarað var í öðrum kafla.
Spurningum sem svarað var í þriðja kafla.

                                                                                                           Rannsóknarspurningar

 

Garðaskóli - Garðabæ
   
Garðaskóli GarðabG