Þegar gengið hefur verið frá öllum texta og efni sem á að fara í ritgerðina þarf að gefa sér góðan tíma til þess að huga að frágangi og útliti. Blaðsíðutal þarf að vera á sínum stað og gæta þess að sleppa því bæði á forsíðu og saurblaði. Línubil þarf að vera rétt, samræmi í uppsetningu fyrirsagna, heimildaskráin rétt sett upp, efnisyfirlitið þarf að vera nákvæmt, greinaskil á sínum stað og svo mætti lengi telja. Yfirleitt er sá tími sem fer í þennan lokafrágang vanmetinn.
Til að auðvelda nemendum þessa vinnu má hér nálgast myndrænt útlit ritgerðar vistað sem pdf-skjal.