Þegar ritgerðir og verkefni eru byggð á heimildum þarf að skrá allar heimildir sem notaðar eru í heimildaskrá. Heimildum á að raða í stafrófsröð eftir nafni höfunda, íslenskum höfundum eftir fornafni en erlendum eftir ættarnafni. Titill bókar kemur í stað höfundar ef enginn er skráður. Nákvæmni er nauðsynleg þegar heimildir eru skráðar og atriði á að skrá í þeirri röð sem nefnd eru hér:
| |
Höfundur
Útgáfuár
Titill
Útgáfustaður
Útgefandi |
 |
Tilgangurinn með heimildaskrám er að lesandi geti fundið efnið sem stuðst var við og að rétt sé farið með heimildir. Nauðsynlegt er að setja í heimildaskrá allar heimildir sem nýttar eru.
Margs konar reglur og leiðbeiningar eru um skráningu heimilda. Til eru ótal rit, prentuð og rafræn um ritgerðasmíð og frágang ritgerða. Mikilvægt er að kynna sér hvaða reglur og/eða venjur eru í gildi í hverjum skóla, deild eða námsgrein. Frekari upplýsingar um heimildaskráningu er m.a. að finna undir krækjunni Ítarefni.
Eftirfarandi reglur við heimildaskráningu skal viðhafa í Garðaskóla:
a) Bók eftir einn íslenskan höfund
Bergsveinn Jónsson. 1963. Mannkynssaga 1648-1789. Reykjavík, Mál og menning.
b) Bók eftir tvo íslenska höfunda
Bragi Guðmundsson og Gunnar Karlsson. 1997. Uppruni nútímans. Reykjavík, Mál og menning.
c) Bók eftir einn erlendan höfund
King, Stephen. 2001. Draumagildran. Reykjavík, Iðunn.
d) Bók eftir tvo erlenda höfunda
Simensen, Jarle og Sven Tägil. 1994. Veröldin breytist 1985-1993. (Saga mannkyns, ritröð AB 16). Reykjavík, AB.
e) Ef höfundar eru fleiri en þrír
Nielsen, Niels Kayser o.fl. 1993. Mannkynssaga 2 : frá miðri nítjándu öld til vorra daga. Reykjavík, Iðnú.
f) Ef höfund vantar:
Heimssöguatlas Iðunnar. 1996. Reykjavík, Iðunn.
g) Ritraðir
Tønnesson, Kåre. 1985. Byltingatímar 1750-1815. (Saga mannkyns, ritröð AB 10). Reykjavík, AB, s. 31-37
h) Tímaritsgreinar
Svennevig, Birgitte. 2006. „Þú ert yngri en þú heldur.” Lifandi vísindi 4:66-67.
i) Blaðagreinar
Elva Björk Sverrisdóttir. 2006. „Sömu laun fyrir sömu vinnu.” Morgunblaðið, 30. mars, s. 4.
j) Greinar úr rafrænum gagnasöfnum
Vietnam. (2006). Encyclopædia Britannica. Skoðað 31. mars 2006. http://www.britannica.com/eb/article-9111155
k) Vefsíður
Haukur Már Helgason. 26.9.2000. „Hvað er búddismi?“. Skoðað 6. apríl 2006. http://visindavefur.hi.is/?id=938.
Alþingi. 2000. „Kynning og saga.“ Skoðað 13. október 2006. http://www.althingi.is/kysag/
l) Munnlegar heimildir
Þær eru ekki skráðar með öðrum heimildum heldur hafðar aftan við þær skriflegu. Skrá á viðmælanda og dagsetningu viðtals.
Bubbi Mortens: Viðtal 13.10.2006