|
|
Stafsetning og greinarmerki
Miklu máli skiptir að stafsetning og greinarmerkjasetning sé í góðu lagi. Hægt er að nota villuleitarforrit í tölvunnitil að finna sumar villurnar en forritin finna þær aldrei allar. Þá er nauðsynlegt að hafa góðar handbækur og orðabækur til að fletta upp í. Bókin Skriffinnur hefur að geyma góðar leiðbeiningar um stafsetningu.
- Ekki punktur á eftir fyrirsögn.
- Eitt bil á eftir punkti.
- Tvípunktur á undan beinni ræðu eða beinum tilvitnunum ef á undan fara inngangsorð eða inngangsmálsgrein: Jónas kallaði út um gluggann: „Viltu láta köttinn í friði.“
Gæsalappir á undan og eftir beinni ræðu: Afi sagði orðrétt við mig: „Hertu þig nú, strákur.“
- Punktur, komma, spurningarmerki og upphrópunarmerki skulu koma á undan gæsalöppum í lok setningar eða hluta setningar:
Árni sagði: „Jón kemur bráðum." —
„Við Stjórnarráðshúsið," sagði Ásgeir, „stendur stytta Hannesar Hafsteins." — Arnór spurði: „Hvenær leggur skipið að?" — „Sveiattan!" sagði gamla konan.
- Gættu þess að hafa orðin jól, páskar, hvítasunna og verslunarmannahelgin með litlum stöfum.
|
Garðaskóli - Garðabæ |
|