Heimildaritgerðir eiga að vera vandaðar og uppsetning þeirra og frágangur til fyrirmyndar. Gæta þarf þess að fara eftir gefnum fyrirmælum t.d. um leturstærð, leturgerð, hægri og vinstri síðujöfnun, línubil o.fl. Mælt er með því að nota Times New Roman eða Ariel. Æskileg leturstærð er 12 punktar, línubil 1,5. Fyrirsagnir eru skrifaðar með stærra letri.