Útlit forsíðna getur verið mismundi en þó eru nokkur grundvallaratriði sem verða að koma fram. Nafn skóla á alltaf að vera efst í vinsta horni síðunnar. Þar undir kemur dagsetning og ártal. Fyrir neðan dagsetningu á að setja nafn námsgreinar. Sumir kennarar vilja að nafn þeirra komi fram á forsíðu og er það þá haft undir heiti námsgreinar. Nafn ritgerðarinnar er haft aðeins fyrir ofan miðju. Velja á ritgerðinni áhugaverðan titil og hugsanlega nota undirtitil til nánari útskýringar. Undir nafn ritgerðar er smekklegt að setja mynd sem tengist á einhvern hátt efninu sem fjallað er um. Neðst til hægri á forsíðunni skal setja nafn höfundar/höfunda og bekkjarheiti (uppsetning er skáhallt horn í horn).


