|
|
Efnisgreinar
- Ritsmíð er byggð upp á nokkrum efnisgreinum sem aðgreindar eru með greinaskilum.
- Efnisgrein er sjálfstæð eining í texta.
- Hver efnisgrein er ein heild sem rúmar eina hugsun.
- Efnisgrein hefur upphaf, miðju og endi.
- Of stutt efnisgrein rúmar vart heila hugsun.
- Of löng efnisgrein verður þvælin og óskýr.
- Eðlileg lengd efnisgreina er fimm til fimmtán línur.
- Minna en tvær línur og meira en hálf síða er ekki í lagi.
- Kafli í bók, frétt í blaði eða sendibréf eru vanalega byggð upp af nokkrum efnisgreinum.
|
Garðaskóli - Garðabæ |
|